7. flokkur kvenna Vals

Áfram Valur

28.12.2011 12:58:42 / valur7flkvk

Nýtt skráningargerfi

Skráningar hafnar á nýrri skráningarsíðu Vals                    

 

Knattspyrnufélagið Valur er að taka í notkun nýtt skráningarkerfi og nú þurfa allir forráðamenn að skrá börn sín og ganga um leið frá greiðslu, þetta á líka við um þá sem þiggja akstur með Valsrútunni. Slóðin inn á skráningarvefinn er https://valur.felog.is. Leiðbeiningar um skráningu og greiðslu er að finna í pdf-skjali á heimasíðu félagsins. Kerfið er samtengt Rafrænni Reykjavík og því er mjög auðvelt að ráðstafa styrknum á sama tíma, sem svo dregst frá heildarupphæðinni. Kerfið býður uppá að skipta upp kreditkortagreiðslu á nokkur tímabil, allt eftir upphæð æfingagjalda. Ef óskað er eftir að greiða með öðrum hætti þarf viðkomandi að koma á skrifstofu Vals eða að hafa samband á skrifstofutíma kl.9:00-16:00.

 

 

Með kærri kveðju,

starfsfólk skrifstofu Vals

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.10.2011 11:57:54 / valur7flkvk

Næsta vika

Næsta vika hjá 7.fl.kvk er eftirfarandi: 

Þriðjudagur 15:50 - 16:40 
Lísbet og Erla sjá um æfinguna. Þær munu halda áfram að vinna með innanfótarsendingar og móttöku. Spilað hálfa æfinguna. 

Fimmtudagur 15:50 - 16:40 
Stöðvaþjálfun. Ætlum að bæta inn í markmannsstöð, þar sem allar stelpurnar reyna fyrir sér í marki. 
Þetta er nýtt hjá okkur og er tilgangurinn að kynna þær fyrir þessari stöðu. Einnig er mikilvægt að allar öðlist
ákveðinn grunn svo auðveldara sé fyrir okkur að setja þær í mark í leikjum. Síðasta ár lenti þetta svolítið mikið á sömu stelpunum
og því ætlum við að reyna að breyta. 

Sunnudagur: FRÍ
Ekki verður æfing á sunnudaginn útaf landsfundi Samfylkingarinnar. 
Engin starfsemi verður í húsinu alla helgina. 

Hvetjum stelpurnar til að æfa sig heima með bolta  Smile

Kær kveðja
Steinunn Sara

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2011 09:06:12 / valur7flkvk

Bíóferð

Hæhæ

Næsta sunnudag ætlar flokkurinn saman í bíó í boði Maríu Perlu :) 
Farið verður á Rauðhettu 2

Mæting upp í Smárabíó kl.12:30, foreldrar Maríu og þjálfarar taka á móti stelpunum. 
Ef stelpurnar eiga þrívíddargleraugu endilega taka þau með, annars kosta þau 150 kr. 

Hér eru símanúmer hjá foreldrum Maríu Perlu ef þið hafið einhverjar spurningar

Guðmundur Breiðfjörð s: 696-9409
Kristín Karólína: 663-3883

Kær kveðja
Steinunn Sara

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.10.2011 10:43:59 / valur7flkvk

Pizzupartý og Valur-Glasgow

Kæru foreldrar

Þessi vika verður aðeins öðruvísi hjá okkur

Í dag, verður gestaþjálfari með Erlu Steinu. Það er enginn annar en Haraldur Björnsson markmaður meistaraflokks karla. 
Ég verð sem fyrr í skólanum en ekki hika við að senda mér póst eða hringja ef eitthvað er. 

Á fimmtudaginn verður pizzupartý og síðan horfum við saman á Valur - Glasgow sem hefst kl. 16:00. 
Stelpurnar gerðu jafntefli úti og því eru möguleikarnir á því að komast í 2.umferð Evrópudeildarinnar miklir. 
Foreldrar eru aðsjálfsögðu velkomnir. 

Ég reikna með að pizzupartýið kosti um 400 kr á mann - pizza, gos og brauðstangir. Best er að borga á staðnum. 
Ef einhver afgangur verður rennur sá peningur í sameiginlegan sjóð foreldrafélagsins. 

Sunnudagsæfingin verður síðan á sínum stað. Vil bara þakka kærlega fyrir hversu margar mættu síðasta sunnudag :) 

Kær kveðja 
Steinunn Sara

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2011 14:14:42 / valur7flkvk

Foreldrafundur

Kæru foreldrar

Foreldrafundur verður haldinn föstudaginn 30.september milli kl. 17 og 18. 
Farið verður yfir mörg mál sem varða flokkinn, þjálfara, foreldra og fleira. 

Ekkert vandamál er að taka stelpurnar með þar sem við erum svo heppin að hafa 3 þjálfara. Einn þjálfari getur þá 
tekið að sér að fara með stelpurnar niður í leiki. 

Kær kveðja
Steinunn Sara

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.09.2011 20:12:03 / valur7flkvk

Nýtt tímabil

Vil byrja á því að þakka kærlega fyrir skemmtilega uppskeruhátíð :) 

Nú hefst formlega nýtt tímabil og eru öll mál sambandi við flokkinn komin á hreint. 
Vil byrja á því að kynna tvo frábæra aðstoðarþjálfara:haha:

Lísbet Sigurðardóttir, leikmaður 3.fl.kvk og U17 ára landsliðs Íslands. Hún þjálfaði 7.fl.kk á síðasta tímabili og stóð sig frábærlega. Einnig aðstoðaði hún okkur með 7.fl.kvk í sumar á mótum. 

Erla Steina, leikmaður 2.fl.kvk og U17 ára landsliðs Íslands. Hún hefur þjálfað hjá Víkingi. 


Næsta mál á dagskrá er foreldrafundur. Ég stefni á að halda foreldrafund næsta föstudag. Þar verður farið yfir mörg mál og skipað foreldraráð. Mikilvægt er að foreldrar fjölmenni á fundinn. 

Kær kveðja
Steinunn Sara

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.09.2011 09:52:00 / valur7flkvk

Uppskeruhátíð og Stjarnan - Valur

Uppskeruhátíð yngri flokkanna í fótbolta verður haldin í hátíðarsal Vodafone hallarinnar sunnudaginn 25. september kl.13:30. Þar verður uppskera sumarsins tíunduð og viðurkenningar veittar fyrir tímabilið 2010-2011 m.a. Sr. Friðriksbikarar og Lollabikar.

Að lokinni afhendingu viðurkenninga býður félagið upp á safa og kaffi fyrir alla gesti. Iðkendur eru beðnir um að koma með köku/brauðmeti á hlaðborð.

Kl. 16 hefst svo leikur Vals og Stjörnunnar í Garðabæ í Pepsi-deild karla og erum við að kanna áhuga á að vera með strætóferðir á leikinn að lokinni uppskeruhátíð.
Endilega skráið ykkur hér á síðunni ef stelpan ykkar hefur áhuga á að koma :) 

Við hvetjum alla iðkendur til að mæta í æfingagalla Vals eða öðrum rauðum fatnaði. Við hvetjum einnig foreldra til að mæta og fagna uppskerunni með börnum sínum.


Kær kveðja

Þjálfarar




» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2011 10:53:53 / valur7flkvk

Slútt á sumrinu.

Hæ hæ

við ætlum að hittast í sundlauginni í Laugardal kl. 16 í dag.

Förum í sund og vonandi komast sem flestir foreldrar með í sundið. Eftir sund ætlum við að fara upp í Valsheimili og fá okkur pizzur saman.

Það væri gott ef allar kæmu með pening með sér. Við borgum sjálfar í sundið og fyrir pizzurnar. Það má reikna með sirka 250 kr. á mann fyrir pizzunum.

Vonandi sjáum við sem flestar!




» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2011 12:40:02 / valur7flkvk

Frítt á Landsleikinn í kvöld.

KSÍ býður öllum iðkendum í yngri flokkum Vals frítt á landsleikinn við Kýpur í Undankeppni EM á Laugardalsvellinum í kvöld. Allir iðkendur í 3-8 flokki eru velkomnir ásamt forráðamönnum.

Við ætlum að hittast á bílaplaninu hjá Menntaskólanum í Hamrahlíð kl 17.50 og leggja af stað stundvíslega kl. 18.00 gangandi niður á Laugardalsvöll. Leikurinn hefst 18.45. Þeir sem búa nær Laugardalsvellinum geta slegist í hópinn á leiðinni, við verðum komin á völlinn um 18.30 við suðurinngang í nýju bláu stúkunni.

Ath að miðalausum áhorfendum verður ekki hleypt inn við hliðið, allir þurfa miða frá KSÍ sem undirritaður verður með.

ÁFRAM ÍSLAND
Jón Gunnar Bergs
862-8019
 
P.S ég verð með 100 barna miða og 20 fullorðins miða frá KSÍ,látið mig vita ef stórir hópar (sérstaklega foreldrar) úr flokkunum eru væntanlegir svo ég geti gert ráðstafanir fyrir fleiri miðum.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2011 12:27:17 / valur7flkvk

Frítt á Landsleikinn í kvöld.

 
KSÍ býður öllum iðkendum í yngri flokkum Vals frítt á landsleikinn við Kýpur í Undankeppni EM á Laugardalsvellinum í kvöld. Allir iðkendur í 3-8 flokki eru velkomnir ásamt forráðamönnum.

Við ætlum að hittast á bílaplaninu hjá Menntaskólanum í Hamrahlíð kl 17.50 og leggja af stað stundvíslega kl. 18.00 gangandi niður á Laugardalsvöll. Leikurinn hefst 18.45. Þeir sem búa nær Laugardalsvellinum geta slegist í hópinn á leiðinni, við verðum komin á völlinn um 18.30 við suðurinngang í nýju bláu stúkunni.

Ath að miðalausum áhorfendum verður ekki hleypt inn við hliðið, allir þurfa miða frá KSÍ sem undirritaður verður með.

ÁFRAM ÍSLAND
Jón Gunnar Bergs
862-8019
 
P.S ég verð með 100 barna miða og 20 fullorðins miða frá KSÍ,látið mig vita ef stórir hópar (sérstaklega foreldrar) úr flokkunum eru væntanlegir svo ég geti gert ráðstafanir fyrir fleiri miðum.


Við

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2011 12:58:40 / valur7flkvk

Frí á æfingum til 13.sept.

Hæ hæ,

við ætlum að taka frí á æfingum þangað til skólarútan byrjar að ganga. Hún byrjar 12.sept svo að það er æfing hjá okkur þriðjudaginn 13. sept. Tímasetningin verður auglýst þegar nær dregur!!

Ég mun senda foreldrum póst og auglýsa á blogginu að við ætlum að hafa félagslega æfingu. Dagskrá og tímasetning verða auglýst síðar.

Kv.
Kristín Ýr


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2011 12:15:57 / valur7flkvk

Æfingar næstu tvær vikur.

Hæ hæ,

Ég vil byrja á því að þakka öllum fyrir mótið í gær og segja til hamingju við allar með mótið. C liðið fór á kostum og vann mótið. Frábær árangur og þvílíkar framfarir sem þið hafið sýnt í sumar! Til hamingju :)

A liðið stóð sig líka rosalega vel. Og eins og ein sniðug sagði í gær: við erum mjög sanngjarnt lið því að A liðið vann á Siglufirði og nú vinnum við í C liðinu :)

Æfingarnar breytast næstu tvær vikurnar og verða á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16.00 á gervigrasinu.

Svona eru næstu tvær vikurnar og ég set inn á bloggið þegar innitímarnir okkar verða komnir á hreint. Svo kemur bráðum að uppskeruhátíðinni og ég mun líka auglýsa hana þegar dagsetning er komin.

Sjáumst á æfingu á morgun kl 16.00 allar að koma klæddar eftir veðri!

Kv.
Kristín Ýr


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.08.2011 15:23:51 / valur7flkvk

Bónusmót Fylkis

Hæ hæ,

Bónusmót Fylkis verður haldið næstkomandi sunnudag, 21.ágúst. Við erum með A og C lið skráð og fyrsti leikur hjá báðum liðum hefst kl. 15.30 svo það er mæting kl. 15.00 í Fylkisheimilið og við skulum bara hittast frammi hjá afgreiðslunni.

Það væri frábært að fá skráningu á mótið senda í pósti kristinyr21@gmail.com og mótsgjaldið er aðeins 500 kr svo við komum bara allar með 500 kr.

Bæði lið eiga leiki kl. 15.30 16.30 og 17.30 svo þetta er þriggja tíma prógram.

Þetta er seinasta mótið sem við tökum þátt í svo fara að koma vetrartímar og flokkaskiptingar. Sjáumst vonandi sem flestar!!

Kv.
Kristín Ýr


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.08.2011 18:42:33 / valur7flkvk

Frí á æfingu Mánudaginn 8.júlí.

Hæ hæ stelpur.

Það er frí á æfingu á morgun enda eruð þið búnar að vera á fullu alla helgina :) Sjáumst hressar á miðvikudaginn!

Kv.
Kristín Ýr


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.07.2011 11:26:12 / valur7flkvk

Síðustu skráningar á Siglufjörð.

Hæ hæ,

þá eru margar búnar að skrá sig á Pæjumótið Siglufirði en við bíðum enn eftir því að fá skráningu frá nokkrum og það væri frábært ef hægt væri að skrá allar sem fyrst svo við getum raðað liðunum niður.

Þessar hafa þegar skráð sig:
Emma Jóns
Olla Sigga
Sunna
Heiða
Karólína
Fjóla
Ásdís
Regína
Steffý
Kristína
Helga Sonja
Ásgerður
Sara

okkur vantar enn tvær skráningar til að ná í tvö lið en ég er viss um að það reddast.

Sjáumst á æfingu eftir viku!

Kv.
Kristín Ýr


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8